Sýn

22. janúar 2025

Framboð vegna aðalfundar

Höfuðstöðvar Sýnar að Suðurlandsbraut 8

Tilnefningarnefnd Sýnar hf. vekur athygli á að eyðublað vegna framboðs til stjórnar félagsins á aðalfundi þess, sem fram fer föstudaginn 14. mars 2025, er nú aðgengilegt á þessari slóð: https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur. Áhugasömum er bent á að hafa samband við formann tilnefningarnefndar, Þröst Olaf Sigurjónsson á netfangið throstur.olaf@islandia.is óski þeir eftir að nefndin leggi mat á möguleg framboð. Slíkar óskir þurfa að berast eigi síðar en 14. febrúar 2025.