7. febrúar 2024
Eyðublöð vegna framboðs til stjórnar aðgengileg
Höfuðstöðvar Sýnar að Suðurlandsbraut í Reykjavík
Tilnefningarnefnd Sýnar hf. vekur athygli á að eyðublað vegna framboðs til stjórnar félagsins á aðalfundi þess, sem fram fer fimmtudaginn 11. apríl 2024 kl. 15:00, er nú aðgengilegt á þessari slóð: https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við formann tilnefningarnefndar, Þröst Ólaf Sigurjónsson, á netfangið throstur.olaf@islandia.is óski þeir eftir að nefndin leggi mat á möguleg framboð. Slíkar óskir þurfa að berast eigi síðar 6. mars 2024.