Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

Starfsumsókn

Gerð ferilskrár

Ferilskrá er oft fyrstu kynni atvinnurekenda af umsækjanda og því skiptir miklu máli að hún sé vönduð og gefi greinargóðar upplýsingar. Oft þarf atvinnurekandi að velja úr mörgum umsóknum og þá þarf ferilskráin þín standist samanburð. Skapast hefur sú venja að setja mynd í ferilskrána; þetta gerir hana enn persónulegri og auðveldar þeim sem eru að ráða í starfið að muna eftir þinni umsókn. Vönduð ferilskrá getur fært þig einu skrefi nær starfinu sem þú óskar þér. Fylgja má eftirfarandi leiðbeiningum um gerð ferilskrár.

Persónuupplýsingar

Hafðu nafn, kennitölu, netfang, heimilisfang og símanúmer efst á blaðinu svo auðvelt sé að hafa samband við þig.

Menntun

Nauðsynlegt er að fram komi nafn skólans, námsgrein og námsgráða svo og tímabilið sem námið var stundað. Ef námið er ólokið þarf að geta þess. Einnig getur verið gott að gefa smá lýsingu á lokaverkefnum eða áhugasvið í náminu. Mikilvægt er að raða í tímaröð og setja nýjustu upplýsingar efst.

Starfsreynsla

Greinið frá fyrri störfum, vinnustöðum og tímabil. Einnig getur verið gott að gefa örstutta starfslýsingu eða ábyrgðarlýsingu á fyrri störfum. Setjið upplýsingarnar í tímaröð með nýjustu upplýsingar efst.

Námskeið

Hér er gott að tilgreina öll námskeið og/eða fyrirlestra sem þú hefur sótt, hvenær og við hvaða skóla eða fyrirtæki.

Tölvuþekking

Tilgreindu hvaða forrit þú hefur þekkingu á og hvernig þú hefur notað þau í fyrri störfum.

Tungumálaþekking

Taktu fram hversu vel þú getir skrifað, lesið og skilið viðkomandi tungumál og hvort þú hafir þurft að nýta tungumálaþekkingu í fyrri störfum eða námi.

Meðmælendur

Tilgreindu nafn, starfsheiti og símanúmer hjá meðmælandum. Vertu viss um að símanúmerin séu rétt. Taktu fram hvort megi hafa samband við meðmælanda án þess að talað sé við þig fyrst, sérstaklega ef um núverandi vinnuveitanda er að ræða.

Útlit

Ekki hafa mikið skraut, liti eða mismunandi leturgerð. Leggðu frekar áherslu á að vanda stafsetningu, málfar og framsetningu upplýsinga. Reyndu að takmarka lengdina við 1-2 blaðsíður. Ef þú velur að hafa mynd, gæti verið góð fjárfesting að fara til atvinnuljósmyndara.

Annað

Einnig getur verið árangursríkt að setja inn upplýsingar um áhugamál, fjölskylduaðstæður, viðurkenningar, dvöl erlendis, þátttöku í félagslífi og framtíðaráform þín.

Yfirlestur

Fáðu einhvern til að lesa ferilskrána yfir til að fá annað álit.