23. ágúst 2024
Uppgjör 2F 2024
Fundaraðstaða á 2. hæð í höfuðstöðvum Sýnar
Sýn hf. birtir uppgjör 2F þann 28. ágúst næstkomandi, eftir lokun markaða. Tekin hefur verið ákvörðun um að kynning á uppgjörinu verði haldin fimmtudaginn 29. ágúst kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8.
Fyrirspurnir um uppgjörið má senda á fjarfestatengsl@syn.is fyrir kynningarfund og einnig verður tekið á móti spurningum meðan á fundi stendur.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi, en vefslóðin verður birt hér þegar nær dregur.