Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

Sýn

5. október 2023

Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Sýnar á Já

Höfuðstöðvar Sýnar að Suðurlandsbraut í Reykjavík

Samkeppniseftirlitið og Sýn hafa skrifað undir sátt þar sem Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf. og Já hf. Með þessu er síðasta fyrirvara í samningi um kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf., móðurfélags Já hf., aflétt. Áður hafði fyrirvörum um m.a. áreiðanleikakönnun og sölu á rekstri Gallup á Íslandi til þriðja aðila verið aflétt. Sýn mun fá Já afhent innan fjórtán daga og mun greiðsla kaupverðs fara fram á afhendingardegi.

Með sáttinni hefur Samkeppniseftirlitið samþykkt ákveðnar aðgerðir sem Sýn hefur lagt til, einkum með það að markmiði að koma til móts við möguleg áhrif á virka samkeppni um miðlun símakrárupplýsinga úr númera- og vistfangaskrá fjarskiptafyrirtækja, sem samruninn gæti valdið.

Áætluð óbreytt áhrif reksturs Já á Sýn er um 500 milljón króna velta og 70 milljón króna EBITDA.

Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar:

„Það veitir okkur mikla ánægju að geta tilkynnt að öllum skilyrðum fyrir kaupum á Já er nú fullnægt,“ segir Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar.

„Eftir afhendingu hefst nýr kafli í vegferð Sýnar á vefmiðlum þar sem við munum byggja ofan á þá styrkleika sem Já er þekkt fyrir. Miklar breytingar eru að verða á auglýsingamarkaði en auglýsingamiðlar Sýnar, Vísir og Bylgjan eru leiðandi á sínum mörkuðum og með samþættingu við Já mun vöruframboðið styrkjast enn frekar. Þá verður með kaupunum til ný tekjustoð í þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga m.a. í kringum sýnileika og sölutorg.“

Vilborg Helga Harðardóttir, forstjóri Já:

„Við erum full tilhlökkunar yfir að ganga nú til liðs við Sýn og takast á við þau fjölmörgu tækifæri sem við sjáum í því að sameina krafta Já og annarra eininga Sýnar, ekki síst Vísis.“ Ráðgjafar seljanda voru Arctica Finance og LMG Lögmenn og ráðgjafi kaupanda var Landslög.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is.