Sýn

21. október 2024

Niðurstöður uppgjörs 3F og markaðsdagur Sýnar

Höfuðstöðvar Sýnar að Suðurlandsbraut í Reykjavík

Stjórn Sýnar hf. mun taka fyrir og samþykkja árshlutareikning samstæðunnar fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2024 á stjórnarfundi sem fer fram miðvikudaginn 13. nóvember. Uppgjörið verður birt í framhaldinu, eftir lokun markaða.

Að þessu sinni verður kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila hluti af markaðsdegi Sýnar sem haldinn verður fimmtudaginn 14. nóvember. Á fundinum munu stjórnendur Sýnar kynna nýtt stjórnskipulag og stefnuáherslur í kjölfar stefnumótunar auk þess sem farið verður yfir helstu niðurstöður uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2024.

Viðburðurinn fer fram í myndveri Sýnar að Suðurlandsbraut 10 og stendur frá kl. 12:00 til kl. 16:00. Við bjóðum gesti velkomna í sal en skráning fer fram hér.

Þau sem ekki hafa tök á að mæta í sal geta fylgst með í beinu streymi.

Fjárfestatengsl Sýnar veita frekari upplýsingar á netfanginu fjarfestatengsl@syn.is.