Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

Helga Björg Antonsdóttir

Markaðsstjóri Vodafone

21. desember 2022

Ganga frá 3 milljarða kaupum Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar

Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. undirrituðu í gær kaupsamning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsöluaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um internettengingar til útlanda.

Umsamið kaupverð eru 3 milljarðar króna og munu viðskiptin hafa jákvæð áhrif á rekstrarkostnað og lækka árlega fjárfestingaþörf Sýnar. Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 m.kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingaþörf í kringum 120 m.kr. yfir samningstímann. Viðskiptin eru eftir sem áður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

„Það er ánægjulegt fyrir Sýn að klára samninga við Ljósleiðarann þar sem við seljum öflugt stofnnet sem félagið hefur byggt upp síðustu 22 ár. Með þessu skerpum við enn betur á fókus okkar á viðskiptavini félagsins og treystum á Ljósleiðarann í uppbyggingu og viðhaldi hágæða ljósleiðaranets um allt land á samkeppnishæfum kjörum. Með þjónustusamningi tryggjum við okkur aðgang að öruggum tengingum, auknum hraða og háu þjónustustigi næstu 12 árin. Viðskiptin munu styrkja efnahag og lausafjárstöðu Sýnar hf. og gera félagið enn betur í stakk búið að sækja fram og auka markaðshlutdeild á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði,“ segir Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar hf.