Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

Guðfinnur Sigurvinsson

Samskiptastjóri

22. mars 2018

Fjarskipti hf. verða Sýn hf.

Vörumerki Sýn hf.

Samþykkt var á aðalfundi Fjarskipta hf. sem fram fór í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8 síðdegis í dag að nafnabreyta félaginu og er Sýn nýtt heiti á sameinuðu félagi Vodafone og sameinaðrar fjölmiðlastarfsemi sem innifelur meðal annars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957 og Xið 977.

Aðalástæðan fyrir nafnabreytingunni, úr Fjarskipti hf., er sú að starfsemi félagsins hefur breikkað og því er gamla nafnið ekki nógu lýsandi fyrir sameinað félag. Sýn verður þannig regnhlífavörumerki yfir 20 núverandi vörumerkja og framtíðar vörumerkja. Þessi breyting hefur engin áhrif á notkun eða starfsemi vörumerkjanna heldur er einungis ætlað að sameina mörg sterkustu vörumerki landsins í eina heild. Vörumerkið mun til að mynda vera notað í tengslum við reikningagerð sameinaðs félags og í tengslum við skráningu félagsins á verðbréfamarkaði og aðra almenna þætti félagsins, á sama hátt og Fjarskipti hf. var notað áður. Sýn er gamalt vörumerki sem margir muna eftir í tengslum við fjölmiðlastarfsemi. Nafnið er þó ekki síður valið með tilliti til mikilvægi þess að horfa til framtíðar á þeim mörkuðum sem fyrirtækið starfar.

„Á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar er skýr stefna og framtíðarsýn fyrirtækja nauðsynleg til árangurs. Sýn starfar á spennandi mörkuðum sem munu halda áfram í hröðu breytingaferli. Við hræðumst ekki þær breytingar heldur sjáum í þeim mikil tækifæri. Nafnið mun stöðugt minna okkur á að við þurfum að halda áfram að sýna frumkvæði og sköpun í okkar rekstri til að skila árangri fyrir okkar viðskiptavini og samfélagið allt. Við ætlum okkur ekkert minna en að vera leiðtogi á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi og til þess þarf bæði skýra og nýja sýn,“ segir Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar.