Sýn

29. ágúst 2024

Árangur í fullu samræmi við útgefna afkomuspá

Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2024 var samþykktur á stjórnarfundi þann 28. ágúst 2024.

Rekstrarhagnaður (EBIT) Sýnar hf. nam 169 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 samanborið við 1.002 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður á öðrum ársfjórðungi var 50 m.kr., samanborið við 574 m.kr. á fyrra ári.

Tap eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins nam 339 m.kr. samanborið við 483 m.kr. hagnað á sama tímabili árið 2023. Skýrist þessi munur helst af breytilegum tekjum af IoT þjónustu annars vegar og afskrifta sem voru lægri vegna endursamninga við birgja hins vegar, samtals uppá 706 m.kr. Greint er ítarlegar frá þessu í fjárfestakynningu sem birt verður fyrir fjárfestafund sem haldinn verður fimmtudaginn 29. ágúst kl. 08:30.

Árangur félagsins á fyrri helmingi ársins er í fullu samræmi við forsendur afkomuspár fyrir árið 2024 sem félagið birti 2. júlí síðastliðinn og gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT), án nokkurra leiðréttinga vegna einskiptiskostnaðarliða, verði á bilinu 900-1.100 m.kr. Stjórnendur félagsins telja því að full ástæða sé til að ætla að áætlun félagsins fyrir árið 2024 standist. Jafnframt gera stjórnendur ráð fyrir verulegum jákvæðum viðsnúningi á sjóðstreymi frá rekstri félagsins á seinni helmingi ársins.

Félagið er á réttri leið með að ná skilvirknimarkmiðum sínum um að skila 6-800 m.kr. í rekstrarbata á ársgrundvelli á síðari hluta ársins 2024. Rekstrarbatinn ætti að skila félaginu 1.500-1.700 m.kr. í rekstrarhagnað (EBIT) á árinu 2025 án tillits til annara verkefna sem koma inn á því ári.

Sýn tryggði sér í júní sl. sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni fyrir tímabilin 2025-2028. Frá og með næsta hausti munu íslenskir neytendur því geta nálgast allt vinsælasta íþróttaefni sem boðið er upp á í íslensku sjónvarpi á einum stað.

Hexatronic Group hefur undirritað viljayfirlýsingu um kaup á hluta af Endor og er gert ráð fyrir að ljúka þeirri sölu á þriðja ársfjórðungi. Viðskiptin snerta aðallega alþjóðlega starfsemi Endor og stóra innlenda viðskiptavini sem nýta sérhæfðar samþættar lausnir. Innlendir viðskiptavinir Endor munu því áfram vera þjónustaðir af Endor að mestu leyti. Salan á þessari starfsemi mun hafa óveruleg áhrif á framtíðar rekstrarhagnað (EBIT) Sýnar.

Helstu niðurstöður:

  • Tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins voru 11.416 m.kr. samanborið við 11.493 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Lækkun milli samanburðartímabila skýrist að mestu vegna lækkunar í IoT tekjum og í hýsingar- og rekstrarlausnum (Endor). Áframhaldandi vöxtur var í auglýsingasölu, einkum hjá sjónvarpsmiðlum félagsins sem jukust um tæplega 67% á fyrri helmingi ársins. Tekjur af heimatengingum jukust um tæplega 8% milli ára.
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) fyrstu 6 mánuði ársins var 169 m.kr. samanborið við 1.002 m.kr. í fyrra. Tap eftir skatta var 339 m.kr. samanborið við 483 m.kr. hagnað í fyrra. Helstu ástæður lækkunar á rekstrarhagnaði eru samdráttur í IoT tekjum um 340 m.kr., lægri afskriftir sýningarrétta um 366 m.kr., auk hærri launakostnaðar vegna kjarasamninga og minni eignfærslu launa.
  • Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 7.746 m.kr á fyrri helming ársins og jókst um 5,7% milli ára (6M 2023: 7.331 m.kr), sem skýrist að mestu af hærri afskriftum sýningarrétta en afskriftir þeirra á fyrri helming ársins 2023 voru lægri vegna endursamninga við erlendan birgja sem skiluðu lækkun afskrifta upp á 366 m.kr. á tímabilinu. Þá má skýra nokkra hækkun í kostnaðarverði vegna samstarfssamnings við Viaplay sem ekki var til staðar á sama tímabili í fyrra auk Já sem kom inn í samstæðuna undir lok síðasta árs. Leiðrétt fyrir ofangreindum atriðum, lækkaði kostnaðarverð seldrar þjónustu um 3,6% milli ára
  • Rekstrarkostnaður nam 3.501 m.kr. á fyrri helming ársins og jókst um 10,8% milli ára (6M 2023: 3.159 m.kr.). Leiðrétt fyrir innkomu Já, jókst rekstrarkostnaður samstæðunnar um 6%. Eins og áður hefur komið fram þá koma áhrif skilvirkniverkefna ekki inn fyrr en seint á 3. ársfjórðungi.
  • Heildar fjárfestingar á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 námu 2.108 m.kr. (6M 2023: 2.220 m.kr.) þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 1.041 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 1.067 m.kr.
  • Á fyrri hluta ársins voru framkvæmd kaup á eigin bréfum fyrir 76 m.kr. skv. endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 9. nóvember 2023.

Efnahagur 30. júní 2024:

Eigið fé í lok tímabilsins nam 9.864 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 29,0%. Heildarskuldir félagsins voru 24.172 m.kr. í lok annars fjórðungs 2024. Vaxtaberandi langtímaskuldir námu 4.294 m.kr. en hreinar vaxtaberandi skuldir að viðbættum leiguskuldbindingum voru 19.346 m.kr. og veltufjárhlutfall 1,92.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri: „Sýn hefur náð góðum árangri á lykilsviðum. Tekjur af fjölmiðlastarfsemi og þjónustutekjur eru á góðri uppleið og við sjáum jákvæða þróun í fjölda viðskiptavina í IoT þrátt fyrir tímabundinn samdrátt í tekjum. Á þessu sviði eru fjölmörg spennandi tækifæri til vaxtar.

Samanburður á fyrri helmingi ársins 2024 við sama tímabil 2023 tekur mið af nokkrum sértækum þáttum, meðal annars lægri IoT tekjum, hraðari afskriftum sýningarétta og jákvæðum áhrifum afskrifta í endursamningi við erlendan birgja á síðasta ári. Þessir þættir gera samanburð á milli ára nokkuð flókinn. Einnig er vert að nefna að rekstrarniðurstaða félagsins er lituð af of mikilli yfirbyggingu þar sem sameiningar fyrri ára hafa ekki komið að fullu til framkvæmda en við höfum lagt höfuðáherslu á verkefni sem efla samvinnu þvert á félagið, auka skilvirkni og vöxt.

Til að efla þjónustu við viðskiptavini félagsins höfum við fjárfest markvisst í innviðum og erum m.a. í öflugu samstarfi varðandi uppbyggingu á farnetinu. Þar erum við að horfa til aukinnar samnýtingar innviða í fullu samræmi við heimildir sáttar við Samkeppniseftirlitið. Sýn hefur einnig tryggt sér sýningarréttinn á Enska boltanum fyrir tímabilin 2025-2028, en með þeim samningi höfum við tryggt viðskiptavinum félagins aðgang að öllu vinsælasta íþróttaefni sem í boði er á einum stað. Mikil tækifæri eru í samstarfi þvert á félagið við að nýta skalanleika virðiskeðju Sýnar til fulls ásamt því að bjóða uppá dagskrárgerð á heimsmælikvarða. Nú þegar höfum við orðið vör við mikinn áhuga á þessari frábæru vöru, hvort sem er frá viðskiptavinum eða mögulegum dreifingaraðilum. Við munum áfram einbeita okkur að skilvirkni í þjónustu og vöruframboði með það að markmiði að einfalda líf viðskipavina okkar á skemmtilegan og öruggan hátt.

Við höfum metnaðarfull áform fyrir komandi misseri og erum að vinna markvisst að mótun nýrrar stefnu sem verður kynnt fyrir markaðnum á fjárfestadegi Sýnar þann 7. nóvember næstkomandi. Áherslan verður á skilvirkni, vöxt og samvinnu sem eru helstu drifkraftar vegferðar okkar til framtíðar.“

Fjárhagsdagatal 2024:

  • Afkoma 3F 2024 6. nóvember 2024
  • Afkoma 4F og ársuppgjör 2023 19. febrúar 2025
  • Aðalfundur 14. mars 2025

Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.