Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

16. Mars 2021 Sýn hf.

Sýn hf.: Framkomin framboð – fyrirkomulag aðalfundar

Eftirtalin gefa kost á sér til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar Sýnar á aðalfundi, sem haldinn verður föstudaginn 19. mars 2021 kl. 15:00.

Framboð til aðalstjórnar:
*  Hjörleifur Pálsson
*  Tanya Zharov
*  Sigríður Vala Halldórsdóttir
*  Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
*  Páll Gíslason

Framboð til varastjórnar:
*  Óli Rúnar Jónsson
*  Þyri Dröfn Konráðsdóttir

Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Sýnar hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og tveir sitja í varastjórn. Verður því sjálfkjörið í báðum tilvikum. Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar, sem birt var með aðalfundarboði þann 25. febrúar sl.

Framboð til tilnefningarnefndar:
Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum jafnframt tækifæri á að kjósa tvo af þremur í tilnefningarnefnd. Þriðji meðlimur í tilnefningarnefnd er tilnefndur af stjórn félagsins.
Framboð til tilnefningarnefndar:
*  Ragnheiður S. Dagsdóttir
*  Þröstur Olaf Sigurjónsson

Þar sem einungis tvö framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða þeir nefndarmenn sem kosnir eru af aðalfundi félagsins sjálfkjörnir.

Fyrirkomulag aðalfundar

Líkt og getið var um í aðalfundarboði þann 25. febrúar og 5. mars sl. þá verður aðalfundur Sýnar hf. haldinn í aðalstöðvum félagsins að Suðarlandsbraut 8,  Reykjavík, föstudaginn 19. mars kl. 15:00. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað, í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða taka þátt í fundinum með rafrænum hætti, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu www.smartagm.com eigi síðar en kl. 15:00 þann 18. mars nk. eða sólarhring fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma.

Í ljósi samkomutakmarkana eru þeir hluthafar sem hyggjast mæta á fundinn á fundarstað beðnir um að láta vita um mætingu á fundinn við fyrsta tækifæri með því að senda skilaboð á adalfundur2021@syn.is  svo hægt sé að áætla þann fjölda sem mætir.

Nánari leiðbeiningar um skráningu á aðalfundinn og rafræna þátttöku og atkvæðagreiðslu er hægt að finna á vefsvæði félagsins: syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur. Þar er jafnframt að finna önnur fundargögn og frekari upplýsingar tengdar aðalfundinum.