Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

17. Janúar 2022 Sýn hf.

Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 2 keypti Sýn 400.000 eigin hluti að kaupverði 26.800.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
13.1.2022 12:55:38 200.000 67,00 13.400.000
14.1.2022 09:52:37 200.000 67,00 13.400.000
Samtals   400.000   26.800.000
         

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 12. janúar 2022.

Sýn átti 20.750.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 21.150.000 eigin hluti eða sem nemur 7,13% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sýn hefur keypt samtals 400.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,13% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 26.800.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.500.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 9,9% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 600.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 3. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir:

Fjárfestatengsl Sýnar í gegnum net­fangið fjarfestatengsl@syn.is