Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

10. Apríl 2024 Sýn hf.

Sýn hf.: Uppfært fundarboð og breyttar tillögur til aðalfundar

Vísað er til fyrri tilkynninga vegna aðalfundar Sýnar hf., sem fram fer á morgun, fimmtudaginn 11. apríl kl. 15:00.

Meðfylgjandi er uppfært fundarboð og starfskjarastefna, ásamt breyttri tillögu stjórnar undir dagskrárlið 7, sem lýtur að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur. Breytingar frá fyrri tillögu stjórnar eru auðkenndar í skjölunum.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða fylgjast með fundinum í vefstreymi, er vinsamlega bent á að skrá sig tímanlega á vefsvæðinu: www.lumiconnect.com/meeting/syn2024

Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn, þ.m.t. uppfærð kaupréttaráætlun til samræmis við breyttar tillögur stjórnar, auk annarra fundargagna er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins:  https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur

Viðhengi