Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

8. Apríl 2024 Sýn hf.

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar

Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl 2024 kl. 15:00, sbr. fundarboð sem sent var til kauphallar þann 21. mars 2024.

Eftirtalin framboð bárust innan lögboðins framboðsfrests:

Framboð til aðalstjórnar

  • Hákon Stefánsson
  • Mariam Laperashvili
  • Páll Gíslason
  • Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
  • Ragnar Páll Dyer
  • Rannveig Eir Einarsdóttir

Framboð til varastjórnar:

  • Daði Kristjánsson
  • Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna á heimasíðu félagsins: https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur

Framboð til tilnefningarnefndar:
Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum jafnframt tækifæri á að kjósa tvo af þremur í tilnefningarnefnd. Þriðji meðlimur í tilnefningarnefnd er tilnefndur af stjórn félagsins.
Framboð til tilnefningarnefndar:

  • Guðríður Sigurðardóttir
  • Þröstur Olaf Sigurjónsson

Þar sem einungis tvö framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða þeir nefndarmenn sem kosnir eru á aðalfundi félagsins sjálfkjörnir.