Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 1 keypti Sýn hf. 194.635 eigin hluti að kaupverði 11.600.965 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
07.11.2022 | 15:23:21 | 50.000 | 59,75 | 2.987.500 |
08.11.2022 | 10:00:13 | 20.000 | 60,00 | 1.200.000 |
09.11.2022 | 12:56:23 | 50.000 | 59,25 | 2.962.500 |
10.11.2022 | 12:58:38 | 4.635 | 59,00 | 273.465 |
11.11.2022 | 13:37:29 | 50.000 | 59,75 | 2.987.500 |
11.11.2022 | 14:49:42 | 20.000 | 59,50 | 1.190.000 |
Samtals | 194.635 | 11.600.965 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. nóvember 2022.
Sýn hf. átti enga eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 194.635 eigin hluti eða sem nemur 0,07% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaupin munu að hámarki nema 4.958.678 hlutum, eða um 1,85% af útgefnum hlutum félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna fari ekki yfir 300 milljónir króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 18. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 296/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 um tæknilega eftirlitsstaða fyrir skilyrðunum sem gilda um endurkaupaáætlanir og verðjöfnunarráðstafanir sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is