
Galaxy Fold8
Vörunr. 46002
Litur
Birgðastaða
Helstu upplýsingar
FORSÖLUTILBOÐ
Tækið er væntanlegt 7.ágúst og verður á sérstöku kynningarverði til 16.ágúst.
512GB kostar 349.990 í stað 379.990 sem er sama verð og 256GB þannig að þú færð símann með tvöfalt meira minni.
1TB kostar 379.990 í stað 459.990 kr þannig að þú færð 1TB á verði 512GB
Galaxy Buds4 Pro heyrnatól fylgja með símanum sem kaupauki en nauðsynlegt er að sækja um hann HÉR
30 daga áskrift af Sagnalandi fylgir einnig frítt með
Samsung Galaxy Z Fold8
Tækið sameinar kosti snjallsíma og spjaldtölvu í einstaklega þunnu og öflugu tæki. Með stórum samanbrjótanlegum skjá, Snapdragon 8 Elite Gen 5 örgjörva og öflugum Galaxy AI eiginleikum hentar Fold8 jafnt til vinnu, fjölverkavinnslu og afþreyingar.
Tveir hágæðaskjáir
Innri 7,6" Foldable Dynamic LTPO AMOLED 2X skjárinn er með 1828 × 2448 upplausn, HDR10+ stuðningi og 120 Hz breytilegri endurnýjunartíðni sem skilar einstaklega mjúkri og skýrri skjáupplifun. Skjárinn hentar vel fyrir fjölverkavinnslu, lestur, myndbandsáhorf og notkun margra forrita samtímis.
Ytri 5,5" Dynamic LTPO AMOLED 2X skjárinn er einnig með 120 Hz endurnýjunartíðni og 1248 × 1972 upplausn, sem gerir auðvelt að svara skilaboðum, fletta efni og nota helstu eiginleika símans án þess að opna hann.
Myndavél
Galaxy Z Fold8 er búinn öflugu tvöföldu myndavélakerfi sem skilar skýrum og nákvæmum myndum við fjölbreyttar aðstæður.
50 MP aðalmyndavél með optískri myndstöðugun (OIS)
50 MP ofurgleiðhornsmyndavél með 120° sjónsviði
10 MP innri sjálfumyndavél
10 MP myndavél á ytri skjá
Síminn styður 4K myndbandsupptöku við allt að 60 ramma á sekúndu og nýtir bæði OIS og gyro-EIS myndstöðugun fyrir stöðugri upptökur.
Afköst
Fold8 er knúinn Snapdragon 8 Elite Gen 5 (3 nm) örgjörva og kemur með 12 GB eða 16 GB vinnsluminni, eftir útgáfu. Hann ræður auðveldlega við fjölverkavinnslu, leiki og krefjandi öpp ásamt Galaxy AI eiginleikum fyrir myndvinnslu, glósur, þýðingar og aðra snjalla aðstoð.
Síminn keyrir Android 17 með One UI 9 og fær allt að sjö stórar Android uppfærslur.
Geymsla og tengingar
Galaxy Z Fold8 er fáanlegur með:
256 GB geymsluplássi og 12 GB vinnsluminni
512 GB geymsluplássi og 12 GB vinnsluminni
1 TB geymsluplássi með 16 GB vinnsluminni
Tækið styður 5G, Wi-Fi 7, Bluetooth 6.0, NFC og USB-C tengingu.
Rafhlaða
4800 mAh rafhlaðan endist vel yfir daginn og styður:
45 W hraðhleðslu með USB-C
20 W þráðlausa hleðslu
4,5 W þráðlausa orkudeilingu
Hönnun og ending
Galaxy Z Fold8 vegur aðeins 201 g og er 4,5 mm þykkur þegar hann er opinn og 9,7 mm samanbrotinn. Ramminn er úr Advanced Armor Aluminum og tækið er með IP48 vottun, sem veitir vörn gegn vatni og stærri rykögnum.
Samsung Galaxy Z Fold8 er frábær kostur fyrir þá sem vilja samanbrjótanlegt flaggskip með stórum skjá, öflugum afköstum og fjölhæfum eiginleikum í einstaklega þunnri og vandaðri hönnun.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



