Framkvæmdastjórn Sýnar
Framkvæmdastjórn félagsins ber ábyrgð á daglegum rekstri þess og fylgni við rekstraráætlanir.

Forstjóri
Herdís Dröfn Fjeldsted
Herdís Dröfn Fjeldsted er forstjóri Sýnar og kom til starfa um miðjan janúar 2024. Herdís hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi en hún var áður forstjóri Valitor þar sem hún leiddi félagið í gegnum endurskipulagningu og síðar sölu. Þar áður var hún framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Herdís hefur setið í fjölmörgum stjórnum bæði á Íslandi sem og erlendis. Hún var m.a. stjórnarformaður Icelandic Group og VÍS, varaformaður stjórnar Promens, stjórnarmaður í Icelandair Group, Invent Farma, Medicopack A/S og Copeinca AS. Herdís er formaður stjórnar Eyris Venture Management.
Herdís útskrifaðist með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á alþjóðamarkaðssetningu úr Tækniháskóla Íslands árið 2004 og með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011. Herdís er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum.



Framkvæmdastjóri fjármála
Eðvald Ingi Gíslason
Eðvald Ingi Gíslason er fjármálastjóri Sýnar og kom til starfa í maí 2024. Hann kom til Sýnar frá Kviku banka þar sem hann kom á fót og veitti hagdeild forstöðu. Deildin var í lykilhlutverki í stafrænni framþróun fjármálasviðs Kviku og samstæðu hennar, þ.á.m. Kviku eignastýringar, Straums, Aurs, Netgíró og Skilum, ásamt bresku félögunum Kvika Securities ltd. og Ortus Secured Finance. Hann sat einnig í stjórn innheimtufélags Kviku, Skilum ehf.
Þar áður starfaði Eðvald sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Greiðslumiðlun Íslands og við greiningar hjá NextCODE, CCP og Nykredit banka í Danmörku.
Eðvald útskrifaðist með meistaragráðu í verkfræði með áherslu á hagnýta stærðfræði frá DTU í Danmörku árið 2010 en lauk B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005.

Framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs
Gunnar Guðjónsson
Gunnar er framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Sýnar en allar tekjueiningar félagsins heyra undir sviðið, að undanskilinni heildsölu. Undir Sölu & þjónustu fellur öll sala og þjónusta, hvort sem er fyrir einstaklinga (B2C) eða fyrirtæki (B2B) eða á auglýsingamarkaði. Gunnar er einn af stofnendum Endor og starfaði um skeið sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Sýnar. Gunnar hefur viðamikla reynslu í upplýsingatækni, rekstri og þjónustu. Hann var forstjóri Opinna Kerfa frá árinu 2008 til ársins 2015 og þar áður starfaði hann í mismunandi stjórnunarstörfum innan þess félags frá árinu 2000. Gunnar er rekstrarhagfræðingur að mennt með meistaragráðu frá Strathclyde University í Skotlandi.



Framkvæmdastjóri upplýsingatækni
Gunnar Sigurjónsson
Gunnar er framkvæmdastjóri upplýsingatækni og kemur til Sýnar frá Rapyd/Valitor þar sem hann hefur fengist við margvísleg störf á sviði upplýsingatækni og hugbúnaðarþróunar síðustu ellefu ár, nú síðast sem framkvæmdastjóri vöruþróunar- og rekstrarsviðs. Á árunum 2009-2013 starfaði hann sem ráðgjafi á upplýsingatæknisviði Advania, en þar á undan hjá Kögun sem hugbúnaðarsérfræðingur frá árinu 2001. Gunnar lauk MSc. í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2013 og BSc. í rafmagns- og tölvunarfræði árið 2001 frá sama skóla.

Framkvæmdastjóri Upplifunar viðskiptavina
Guðmundur H. Björnsson
Guðmundur stýrir nýju sviði Upplifunar viðskiptavina sem ætlað er að auka ánægju og tryggja jákvæða upplifun viðskiptavina í öllum þáttum starfseminnar. Undir sviðið heyra markaðs- og samskiptamál, vörustýring og verðlagning. Guðmundur er með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hefur m.a. leitt teymi í markaðssamskiptum, vöru- og verðstýringu sem og viðskiptaþróun. Guðmundur hefur starfað hjá þjónustufyrirtækjum á borð við Símann, 365 og VÍS. Síðastliðin ár hefur Guðmundur starfað sem framkvæmdastjóri Heilsu, dótturfyrirtækis Lyfju. Þar á undan starfaði hann sem framkvæmdastjóri stafrænna umbreytinga og markaðsmála hjá Lyfju. Guðmundur er með B.Sc. í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands.



Framkvæmdastjóri miðla og efnisveitna
Kristjana Thors Brynjólfsdóttir
Kristjana er framkvæmdastjóri miðla og efnisveitna hjá Sýn. Sviðið er mikilvægur hlekkur í rekstri Sýnar en þar fer fram öll framleiðsla á dagskrárefni hvort sem er í sjónvarpi, útvarpi og hlaðvarpi. Rekstur fréttastofu heyrir einnig undir Miðla & efnisveitur en unnið er eftir skýrri ritstjórnarstefnu og heyrir ritstjóri frétta beint undir forstjóra. Kristjana hefur áratuga reynslu af fjölmiðlageiranum á Norðurlöndunum, þar sem hún hefur sinnt fjölbreyttum ábyrgðarstörfum. Hún hefur gegnt lykilhlutverkum hjá fyrirtækjum á borð við Warner Bros., Discovery og Viaplay Group. Þar hefur hún m.a. sérhæft sig í stefnumótun, efniskaupum og markaðssetningu, auk stjórnunar stafrænna umbreytingarverkefna. Hún hefur öðlast dýrmæta innsýn í starfsemi fjölmiðlafyrirtækja, leitt fjölþjóðleg verkefni og unnið náið með haghöfum á sviði fjölmiðlunar. Nú síðast hefur Kristjana veitt sjónvarpsþróun Sýnar forstöðu.

Framkvæmdastjóri lögræðisviðs
Páll Ásgrímsson
Páll Ásgrímsson er aðallögfræðingur félagsins en undir hann heyra einnig gæða- og öryggismál, samskiptamál, aðfangastýring og verkefnastýring. Páll kom til starfa hjá félaginu 2014 en áður var hann einn af eigendum lögfræðistofunnar Juris. Hann er reynslumikill lögmaður á sviði félagaréttar, auk þess að hafa sérhæft sig á sviði fjarskipta-, upplýsingatækni- og samkeppnisréttar. Um árabil starfaði Páll sem forstöðumaður og síðar framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Símans (síðar Skipta) auk þess að búa að reynslu frá EFTA og ESA í Brussel og Samkeppnisstofnun. Páll hefur auk þess setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja innan fjarskiptageirans, t.d. Símans hf., Mílu ehf., FARICE hf. og Skjásins ehf.


Sigurbjörn Eiríksson
Sigurbjörn Eiríksson er framkvæmdastjóri innviða hjá Sýn. Hann hefur starfað hjá félaginu í hátt í tuttugu ár, nú síðast sem forstöðumaður innviða Sýnar. Hann býr yfir djúpri þekkingu á félaginu, rekstri fjarskiptakerfa og hefur verið lykilmaður í þeim umbreytingum sem hafa átt sér stað á fjarskiptahlið félagsins síðustu ár. Má þar meðal annars nefna sölu á stofnneti Sýnar til Ljósleiðarans og sölu á farnetsinnviðum.



Framkvæmdastjóri mannauðs
Valdís Arnórsdóttir
Valdís Arnórsdóttir hóf störf sem mannauðstjóri Sýnar í byrjun janúar 2024. Undir mannauðssvið heyra mannauðsmál, eignaumsýsla og Besta Bistró. Valdís kemur til Sýnar frá Marel þar sem að hún starfaði í 11 ár, lengst af sem stjórnandi í alþjóðlegu mannauðsteymi Marel auk þess að leiða alþjóðlegt krísuteymi Marel. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá Heklu. Valdís er með víðtæka innlenda og alþjóðlega reynslu í mannauðsmálum, rekstri, stefnumótun, breytingastjórnun og krísustjórnun.
Valdís er með cand. oecon próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1998 og síðan þá hafa margskonar minni gráður bæst við, nú síðast Viðurkenndur stjórnarmaður frá Akademias 2023.
Skipurit Sýnar
1. desember 2024

Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



