Sjónvarp
Sýn
Sjónvarpsstöðin SÝN verður opin öllum frá 1. ágúst og SÝN+ veitir forskot
Línuleg dagskrá verður opin öllum en forskotið er í streymi með SÝN+.
1. júlí 2025

Frá og með 1. ágúst nk. verður línulega sjónvarpsstöðin SÝN, áður Stöð 2, í opinni dagskrá fyrir alla landsmenn. Með þessu skrifum við nýjan kafla í íslenskri sjónvarpssögu og tökum næsta skref í vegferðinni sem hófst með samruna Vodafone og Stöðvar 2 undir merkjum Sýnar.
Við erum jafnframt að einfalda pakkaframboð Sýnar til að gera aðgang greiðari fyrir áskrifendur. Á næstu dögum og vikum munum við vera í sambandi við áskrifendur og kynna nýtt pakkaframboð Sýnar.
SÝN+
Á sama tíma gerum við áherslubreytingar sem fela í sér að allt efni birtist fyrst á streymisveitunni SÝN+, einni stærstu streymisveitu landsins með hundruð innlendra og erlendra titla. Áskrifendur SÝN+ munu njóta aukins sveigjanleika og aðgangs að sjónvarpsefni áður en það birtist í línulegri dagskrá. Áskrifendur geta hámhorft hvar og hvenær sem er, án auglýsinga inni í þáttum. Þá verður valið sjónvarpsefni eingöngu aðgengilegt í gegnum SÝN+.
Kvöldfréttir og Ísland í dag verða að sjálfsögðu áfram á sínum stað í opinni dagskrá á SÝN.
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar:
„SÝN gegnir lykilhlutverki í íslensku samfélagi sem vettvangur frétta, íþrótta og menningarlegrar upplifunar.
Á síðasta ári ákváðum við að bjóða sjónvarpsfréttir Sýnar án endurgjalds til landsmanna. Nú göngum við skrefinu lengra og gerum alla dagskrá línulegu sjónvarpsstöðvarinnar SÝN aðgengilega án endurgjalds, í fyrsta skipti í sögu stöðvarinnar.
Um leið höldum við áfram að mæta breyttum áhorfsvenjum með þjónustu sem býður upp á aukið frelsi, meiri upplifun, hámhorf og forskot á innihald.
Streymisveitan SÝN+ er fyrir þá sem vilja njóta efnis fyrr, velja hvar og hvenær þeir horfa og fá aðgang að fjölbreyttu úrvali af hágæða sjónvarpsefni. Hvort sem um ræðir vinsælustu íslensku þáttaraðirnar, heimildamyndir, barnaefni eða aðra afþreyingu þá fá áskrifendur SÝN+ meira efni á undan öðrum. Sýn byggir á sterkum grunni og munum við áfram kappkosta við að bjóða viðskiptavinum okkar upp á skemmtilegt sjónvarpsefni, metnaðarfulla íslenska dagskrá og allt það besta úr heimi íþróttanna. Það er betra að vera með Sýn.”
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



