Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

Þórhallur Gunnarsson

Framkvæmdastjóri Miðla

14. ágúst 2020

Tónskáldasjóður Bylgjunnar og Stöðvar 2

Tónskáldasjóður Bylgjunnar og Stöðvar 2 hefur í samvinnu við STEF úthlutað 7.800.000 kr. en alls hlutu 42 listamenn styrk að þessu sinni.

Meðal þeirra sem hlutu hæstu styrkina voru Moses Hightower, Auður, Árstíðir, BSÍ, Elín Ey, Flóni, Helgi Sæmundur, Svala Björgvins, Ragnheiður Gröndal, Mr. Silla og Valdimar.

Að frumkvæði STEFs var stofnað til sjóðsins árið 2011 með það að markmiði að styrkja tónskáld og textahöfunda til nýsköpunar.

„Það hefur verið einstök gróska í íslenskri tónlist í langan tíma en á síðustu mánuðum í miðjum faraldri hefur verið stórkostlegt að fylgjast með hæfileikum og krafti íslensks tónlistarfólks” segir Þórhallur Gunnarsson framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar og stjórnarmaður í Tónskáldasjóði Bylgjunnar og Stöðvar 2. “Eitt af markmiðum miðla Stöðvar 2 og Vodafone er að efla þáttagerð í útvarpi og sjónvarpi þar sem íslensk tónlist er í öndvegi. Einn hluti þeirrar vegferðar var stofnun Íslensku Bylgjunnar í vor sem leikur eingöngu íslenska tónlist. Með stuðningi við íslenskt tónlistarfólk eflum við og auðgum íslenska menningu og fjölmiðlastarfsemi“, segir Þórhallur.

Eftirtaldir aðilar hlutu styrk úr sjóðnum í ár:

  • Agent Fresco
  • Agnar Már Magnússon
  • Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir
  • Auður
  • Axel Flóvent
  • Árstíðir
  • Ásbjörg Jónsdóttir
  • Ásta Kristín Pjetursdóttir
  • BSÍ
  • Cyber
  • Daníel Ágúst Haraldsson
  • Einar Scheving
  • Einar Hrafn Stefánsson
  • Elín Ey
  • Elísabet Eyþórsdóttir
  • Friðrik Róbertsson
  • Guðmundur Jónsson
  • Gunnar Andreas Kristinsson
  • Hafsteinn Þórólfsson
  • Haukur Þór Harðarson
  • Helgi Sæmundur
  • Hildur Vala Einarsdóttir
  • Inga Weishappel
  • Kristinn Arnar Sigurðsson
  • Lára Rúnarsdóttir
  • María Magnúsdóttir
  • Móses Hightower
  • Ragnheiður Gröndal
  • Regína Ósk Óskarsdóttir
  • Sigurður Flosason
  • Sigurlaug Gísladóttir
  • Silja Rós Ragnarsdóttir
  • Soffía Björg Óðinsdóttir
  • Sóley Stefánsdóttir
  • Stefán Hilmarsson
  • Svala Björgvinsdóttir
  • Una Torfadóttir
  • Valdimar Guðmundsson
  • Veronica Jacques
  • Warmland
  • Zoe Ruth Erwin
  • Þórarinn Guðnason