Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

Guðfinnur Sigurvinsson

Samskiptastjóri

7. janúar 2019

Rauði krossinn og Sýn í samstarf

Atli Viðar og Kjartan glaðbeittir

Sýn og Rauði krossinn á Íslandi hafa gert með sér samstarfssamning sem í felst stuðningur Sýnar við alþjóðlegt hjálparstarf Rauða krossins, nánar tiltekið verkefnið Brúun hins stafræna bils. Það aðstoðar landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans í fimmtán Afríkuríkjum að bæta þekkingu og búnað í upplýsinga- og samskiptatækni svo þau megi efla getu sína í hjálparstarfi.

Samstarfssamningurinn er til tveggja ára og felur í sér að Sýn lánar starfsmann með sérþekkingu í upplýsinga- og samskiptatækni til að sinna verkefnum sendifulltrúa í verkefninu.

„Við hjá Sýn erum stolt af að geta stutt við mikilvægt hlutverk Rauða krossins með okkar þekkingu og fólki. Stuðningurinn er í takt við áherslur stefnu okkar um samfélagslega ábyrgð og að gera það með snjöllum hætti með því að brúa mikilvægt stafrænt bil í ríkjum Afríku fellur mjög vel að okkar starfsemi,“ segir Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tækni og innviða hjá Sýn.

„Þetta er mjög mikilvægt verkefni. Í mörgum ríkjum ríkjum Afríku búa Rauða kross félög við svo bágan kost að það er ekki nein nettenging í deildum þar sem sjálfboðaliðar sinna lífsbjargandi hjálparstarfi eða þá að hún er mjög óstöðug,“ segir Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða krossins en verkefninu er meðal annars ætlað að bæta úr þessu.

„Það þarf að tryggja betur að hægt sé að senda mikilvægar upplýsingar sem varða hjálparstarf Rauða krossins svo hægt sé að tryggja betur að nauðsynleg hjálpargögn séu til staðar og að mannúðaraðstoð sé í samræmi við þarfir skjólstæðinga á vettvangi og berist eins skjótt og völ er á,“ segir Atli Viðar og bætir við að mikil ánægja sé hjá Rauða Krossinum með samstarfið við Sýn.

Brúun hins stafræna bils er eitt af langtímaþróunarverkefnum Rauða krossins sem einnig er stutt af Utanríkisráðuneytinu, Íslandsbanka, Reiknistofu bankanna o.fl. íslenskum fyrirtækjum og unnið í samvinnu við Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans.