Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

18. Apríl 2023 Sýn hf.

Sýn hf.: Lækkun hlutafjár

Á aðalfundi Sýnar hf. þann 17. mars 2023 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutfé félagsins. Fundurinn samþykkti að hlutafé félagsins verði lækkað um kr. 173.752.080 að nafnvirði, einvörðungu til lækkunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/2995, um hlutafélög. Hlutafé félagins lækkar þar með úr kr. 2.683.769.620 að nafnvirði í kr. 2.510.017.540 að nafnvirði. Þar sem hver hlutur er að fjárhæð kr. 10,- að nafnverði eða margfeldi þeirrar fjárhæðar, verða útgefnir hlutir í Sýn hf. samtals 251.001.754 eftir lækkunina. Lækkunin nemur öllu hlutafé sem félagið hafði keypt á grundvelli heimildar sem samþykkt var á aðalfundi Sýnar hf. þann 18. mars 2022 til að kaupa eigin hluti.

Beiðni hefur verið send á Nasdaq Iceland og mun lækkunin verða framkvæmd 19. apríl 2023.

Að öðru leyti er vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 17. mars 2023 þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.

Nánari upplýsingar veittar á netfanginu; fjarfestatengsl@syn.is