Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.
Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 3 keypti Sýn 800.000 eigin hluti að kaupverði 53.400.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
18.1.2022 | 11:06:47 | 200.000 | 66,00 | 13.200.000 |
19.1.2022 | 13:06:54 | 100.000 | 67,00 | 6.700.000 |
19.1.2022 | 13:51:34 | 100.000 | 67,00 | 6.700.000 |
20.1.2022 | 12:19:09 | 200.000 | 67,00 | 13.400.000 |
21.1.2022 | 10:25:38 | 200.000 | 67,00 | 13.400.000 |
Samtals | 800.000 | 53.400.000 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 12. janúar 2022.
Sýn átti 21.150.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 21.950.000 eigin hluti eða sem nemur 7,40% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sýn hefur keypt samtals 1.200.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,40% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 80.200.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.500.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 9,9% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 600.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 3. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is