Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.
Sýn hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar
Sýn hf. lauk sölu á óvirkum innviðum í desember sl. Félagið hefur nú þegar greitt upp 2 milljarða af langtímalánum við Landsbankann og mun jafnframt nota hluta söluverðs til fjárfestinga í rekstri. Þá hefur Sýn lokið kaupum á eigin bréfum með tilboðsfyrirkomulagi, sbr. kauphallartilkynning dags. 10. janúar sl. Við lok tilboðsfyrirkomulagsins hafði Sýn hf. eignast 20.750.000 hluti, eða sem nemur um 7% af útgefnu hlutafé félagsins.
Með vísan til viðauka skv. 30. gr. samþykkta Sýnar hf., dags. 19. mars 2021 er félaginu heimilt, í samræmi við 55. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, að kaupa allt að 10% af eigin hlutum í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.
Stjórn Sýnar hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Félagið á í dag 20.750.000 eigin hluti og munu endurkaupin að hámarki nema 8.500.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi samtals að hámarki 9,9% af útgefnu hlutafé félagsins. Þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 600 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 3. mars 2022 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 219.056 hluti eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í desember 2021. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Markaðsviðskipti Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Sýn hf. á 20.750.000 hluti, eða sem nemur um 7,00% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is