Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

13. Maí 2020 Sýn hf.

Sýn hf.: Áhrif COVID-19 sjáanleg á fjórðungnum

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2020 var samþykktur á stjórnarfundi þann 13. maí 2020.

Helstu niðurstöður:

• Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2020 námu 4.995 milljónum króna sem er á pari við sama tímabil 2019. Tekjur Endor ehf. á 1F 2020 eru nú í fyrsta skipti hluti af samstæðuárshlutareikningi félagsins og nema 371 milljónum króna.

• EBITDA nam 1.355 milljónum króna á 1F í samanburði við 1.260 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 27,1% á 1F 2020 samanborið við 25,3% á 1F 2019.

• Tap á 1F 2020 nam 350 milljónum króna samanborið við 670 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Inni í hagnaði 1F 2019 var söluhagnaður að fjárhæð 817 milljónir króna vegna sölu á færeyska dótturfélaginu Hey.

• Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.053 milljónum króna samanborið við 819 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 29%.

• Heildarfjárfestingar félagsins á fyrstu þremur mánuðum ársins námu 738 milljónum króna þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 263 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 475  milljónir króna.

• Fjármögnunarhreyfingar á fyrstu þremur mánuðum ársins voru neikvæðar á tímabilinu um 590 milljónir króna á móti 5 milljónum króna á sama tímabili árið 2019 sem er breyting um 585 milljónir króna.

• Eiginfjárhlutfall Sýn hf. var 26,8% í lok fyrsta fjórðungs ársins 2020.

• Það er áframhaldandi markmið stjórnenda að ná aukinni EBITDA framlegð og betra sjóðstreymi úr rekstri félagsins á árinu 2020. Skipulega er unnið að slíkri breytingu en ekki er að fullu fyrirséð að hve miklu leyti COVID-19 faraldurinn muni hafa áhrif á þetta markmið. Fjárfestingar ársins í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) verða í kringum 1 milljarður.

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Við reyndum að vera varkár í spám okkar fyrir árið en það var ekki inn í okkar svartsýnustu sviðsmynd að hagkerfið myndi meira og minna loka. Við náum samt að sýna aukningu í EBITDA, eins og við höfðum stefnt að. Það helgast mest af því að við erum að ná að gera fyrirtækið sveigjanlegra. Störfum hefur fækkað frá síðasta ári um rúmlega 100 og deildir fyrirtækisins vinna hagkvæmar. Vegna ástandsins þurftum við að loka verslunum, hætta vettvangsþjónustu og auglýsingatekjur lækkuðu mikið. Gagnaverið á Korputorgi hefur verið tekið í notkun en vegna COVID-19 hefur yfirfærsla gagna tafist, en er núna í gangi. Áfram er unnið að því að hagræða í kringum uppbyggingu á 5G og á skyldum innviðum. Við vonumst eftir að geta kynnt útfærslu á næstu 3 mánuðum og teljum að fjarskiptafélögin hafi þar sömu hagsmuni og almenningur. Frjálst sjóðstreymi eykst um yfir 500 milljónir á milli ára. Við leggjum sérstaka áherslu á að bæta sjóðstreymi rekstrarins.“

Frekari upplýsingar:

Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is 

Viðhengi