Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.

4. Júlí 2019 Sýn hf.

Sýn hf.: Sýn hf. kaupir Endor ehf.

Sýn hefur gengið frá samkomulagi um kaup á Endor með fyrirvörum svo sem um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki eftirlitsaðila.  Kaupin verða væntanlega frágengin í ágúst 2019, þegar áreiðanleikakönnun lýkur.

Endor  starfar alþjóðlega í rekstri ofurtölva (e. High Performance Computing) og ætlun Sýnar er að nýta betur Vodafone og alþjóðlegar tengingar fyrirtækisins í að laða til sín erlenda viðskiptavini.  Vodafone á Íslandi hefur rekið gagnaver um langt skeið og tekur nú þátt í uppbyggingu fyrsta hágæða gagnavers Reykjavíkur, Reykjavik DC.

Gunnar Guðjónsson, stofnandi og forstjóri Endor:  „Vöxturinn í okkar geira er gríðarlegur.  Með samstarfi við Vodafone á Íslandi, og víðar, eflist fyrirtækið mjög mikið og við getum sótt enn meira inná þennan spennandi hraðvaxandi markað.“

„Vodafone á Íslandi á mjög öfluga innviði og hefur mikla reynslu og þekkingu af rekstri fjarskiptaneta og gagnavera.  Með kaupum á Endor opnast gátt inná alþjóðlegan markað sem Endor hefur náð miklum árangri á síðustu 5 ár.  Við erum mjög spennt fyrir þeim tækifærum sem myndast við þetta“ segir Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar hf.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar, fjarfestatengsl@syn.is